Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

11. maí 2023

Verkföll hefjast á mánudaginn 15. maí

Félagsfólk aðildarfélaga BSRB hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur hefja verkföll á mánudaginn kemur. Hjá Sameyki fer starfsfólk í Grunnskóla Seltjarnarness og Frístund í verkfall.

Krafist er sömu launa fyrir sömu störf. Sveitarfélög landsins mismuna starfsfólki sínu, fólki sem vinnur sömu eða sambærileg störf, jafnvel inni á sömu vinnustöðum, með þeim afleiðingum að félagsfólk aðildarfélaga BSRB eiga að sætta sig við 25% minni launahækkun en aðrir. Þannig er starfsfólki mismunað og gert að horfa upp á það að vinnufélagar þeirra, í sömu vinnu, fái launahækkun frá 1. janúar, en það sjálft ekki fyrr en 1. apríl.

Um er að ræða fólk sem vinnur ómissandi störf, t.d. við umönnun barna, í grunnskólum og frístundaheimilum, þjónustu við fatlað fólk og eldra fólk, í sundlaugum og íþróttamannvirkjum, höfnum, bæjarskrifstofum og áhaldahúsum, en sveitarfélögin borga lægstu laun á opinberum markaði. Þessi óbilgirni sveitarfélaganna gagnvart starfsfólki sínu verður ekki liðin.

Aðildarfélög BSRB hafa því boðað til verkfalla í leik- og grunnskólum, frístundamiðstöðvum, mötuneytum og höfnum í tíu sveitarfélögum. Yfir 1500 manns taka þátt í aðgerðunum sem eru umfangsmiklar og munu raska starfsemi og lífi fólks verulega. Ekki er gripið til verkfallanna af léttúð heldur til að knýja þau sveitarfélög landsins að samningsborðinu sem neita að leiðrétta launamisrétti gagnvart starfsfólki sínu.


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)