Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

19. maí 2023

Enn frekari verkföll BSRB samþykkt um land allt

Atkvæðagreiðslu um frekari verkfallsaðgerðir félagsfólks í aðildarfélögum BSRB um allt landvegna kjaradeilu BSRB við sveitarfélög landsins lauk í dag kl. 11:00. Félagsfólk í Sameyki á Akranesi samþykkti með 89,6 prósentum með verkfalli og á Seltjarnarnesi 94,2 prósent með frekari verkfalli.  

Verkfallsboðun um frekari aðgerðir var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta í 29 sveitarfélögum, og eru þau eftirfarandi:

Akranes, Akureyri, Árborg, Bláskógarbyggð, Borgarbyggð, Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð, Grindavík, Grímsnes- og Grafningshreppur, Grundafjarðarbær, Hafnarfjörður, Hveragerði, Ísafjarðarbær, Kópavogur, Mosfellsbær, Mýrdalshreppur, Norðurþing, Rangárþing Eystra, Rangárþing Ytra, Reykjanesbær, Seltjarnarnes, Skagafjörður, Snæfellsbær, Stykkishólmur, Suðurnesjabær, Vestmanneyjar, Vogar og Ölfus.

Um er að ræða starfsfólk leikskóla, sundlauga- og íþróttamannvirkja, bæjarskrifstofa, hafna, þjónustumiðstöðva og áhaldahúsa svo eitthvað sé nefnt en mismunandi er eftir sveitarfélögum hvaða hópar leggja niður störf á hverjum tíma. Um er að ræða ótímabundið verkfall hjá sundlaugum og íþróttamannvirkjum um allt land.

„Niðurstaðan endurspeglar þá ríku samstöðu félagsfólks um að láta ekki bjóða sér þetta misrétti. Það er mikil ólga í hópnum sem skilur ekki sinnuleysi bæjar- og sveitarstjórnarfulltrúa sinna og upplifir það sem virðingarleysi gagnvart störfum þeirra. Það stefnir því í mjög umfangsmiklar verkfallsaðgerðir sem munu hafa víðtæk áhrif á starfsemi sveitarfélaga,“ sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, um atkvæðagreiðsluna.

Á mánudaginn hófust verkföll í Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi og á mánudag bætast við sex sveitarfélög til viðbótar og koll af kolli. Aukinn þungi færist því í aðgerðir eftir sem líður ef ekki næst að semja.

*Atkvæðagreiðsla stendur enn yfir í Garðabæ en henni lýkur á hádegi á morgun, laugardag.


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)