Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

7. júní 2023

Leggst ömurlega í fólk að ekki sé hægt að semja um svo hófstilltar kröfur

Emelía Ásrún segir ömurlegt að ekki sé hægt að semja um svo hófstilltar kröfur.

„Ég legg það nú upp í vana minn að vera bjartsýn en eftir þennan fund er ég orðin ansi svartsýn,“ svarar Emilía Ásrún Gunnsteinsdóttir, trúnaðarmaður á leikskóla Seltjarnarness, spurð um hvort hún haldi að verkfallið verði langt. Hún er ein af níu hundruð leikskólastarfsmönnum sem eru nú í verkföllum í ellefu sveitarfélögum.

Fundurinn sem hún vísar til er sá á milli BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara í hádeginu í gær en þar var samninganefnd SÍS hörð á því að neita að greiða eingreiðslu upp á 128 þúsund krónur til að leiðrétta misræmi í launum.


Félagsfólk í BSRB á baráttufundi í Bæjarbíó.

„Þetta leggst ömurlega í fólk, ef ég segi eins og er. Þetta er ömurlegt. Við bjuggumst ekki við því að þetta yrði staðan. Við skiljum ekki hvers vegna það er ekki bara hægt að semja. Okkur finnst þetta hófstilltar kröfur,“ segir Emilía.

Emilía segir launin séu einfaldlega það lág að verkfall sé það eina í stöðunni. „Ég skil ekki hvers vegna sveitarfélagið semur ekki,“ segir Emilía en hún telur að margir kollegar hennar eigi erfitt með að ná endum saman. „Eins og ég, ég er ekki bara í einni vinnu. Ég er í tveimur vinnum, til þess að geta haft það svona allavega fínt. Hvað þá fólk sem er bara í þessari vinnu, þetta er ótrúlegt. Ég held að mjög margir séu alveg að ströggla. Flestir jafnvel,“ segir Emilía.

Emilía segist hafa fullan skilning fyrir þeim óþægindum sem foreldrar á Seltjarnarnesi verða fyrir. „Nú eru sumarfrí að fara að hefjast og ég get ímyndað mér að verkfallið hafi neikvæð áhrif fyrir marga foreldra, sumir örugglega að taka það fyrr en annars,“ segir Emilía. Þrátt fyrir þetta segist hún skynja að flestir foreldrar standi með leikskólastarfsmönnum í kjarabaráttunni.

Fréttin birtist fyrst á vef Samstöðvarinnar.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)