Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

7. júní 2023

Mótmælendur kröfðust réttlátra launa, sömu laun fyrir sömu störf

F.v. Astrid Jóhanna Kristjánsdóttir, Esther María Ragnarsdóttir og Erla Þórdís Traustadóttir. Ljósmyndir/Axel Jón

Þrjár kraftmiklar mæður, með börn sín á arminum efndu til mótmæla í morgun við skrifstofur Sambands íslenskra sveitarfélaga í Borgartúni og kröfðust þess að sambandið gengi þegar í stað frá kjarasamningi við BSRB. Þær sögðu að kröfurnar væru réttmætar og réttlátar fyrir launafólk sem sinnir mikilvægustu störfunum í sveitarfélögunum, og gera það á lægstu laununum. Þær kröfðust þess að sambandið greiddi þeim sömu laun fyrir sömu störf. Nokkur fjöldi fólks var saman komin í Borgartúni og krafðist þess sama. Þessar kraftmiklu konur sem stóðu fyrir mótmælunum heita Astrid Jóhanna Kristjánsdóttir, Erla Þórdís Traustadóttir og Esther María Ragnarsdóttir.

Nóg boðið
Spurðar hvers vegna þær standi fyrir þessum mótmælum, svöruðu þær að þeim hafi verið nóg boðið af óbilgirni SÍS og því ákveðið að standa fyrir þessum mótmælum fyrir utan skrifstofur sambandsins, sem af ótrúlegri framkomu neiti að greiða starfsfóli sínu sömu laun fyrir sömu störf. Þær sögðust vilja þakka öllum þeim sem sáu sér fært að koma á mótmælafundinn og styðja félagsfólk í BSRB í baráttunni fyrir sanngjörnum launum.


Astrid með dóttur sína á arminum á mótmælafundinum í morgun.

„Árið er 2023 og við erum vitni að því að sjá að brotið sé á réttindum fólks og því miður hefur fólk þurft að leggja niður sín störf, störf sem eru lykillinn okkar að jafnrétti hér á landi. Ef ekki væri fyrir leikskólastarfsmenn þá væri ég ekki með útivinnandi þar sem ég á 4 börn. Þetta á samt ekki bara við um leikskólastarfsmenn heldur eru þetta mörg önnur mikilvæg störf eins og starfsmenn sundlauga, íþróttahúsa, mötuneyta og fleira. Styðjum fólkið sem heldur samfélaginu okkar gangandi og knýjum Samband íslenskra sveitafélaga til þess að semja um að launin verði leiðrétt,“ sagði Astrid Jóhanna.

Starfsmannavelta vegna launamisréttis
Erla Þórdís sagðist eiga tvær dætur, eina tveggja og hálfs árs og eina nýfædda fyrir þremur vikum. Sú eldri hafi verið svo heppin að hafa verið á leikskóla frá því að hún var eins árs.


Erla Þórdís ræðir við fréttamann RÚV á mótmælafundinum í morgun.


„Ég á líka eina þriggja vikna sem mun vonandi komast inná leikskóla haustið 2024. Í störfum fólks á leikskólum er rútína yfir daginn þar sem börnin njóta sín vel í rútínunni og finna fyrir öryggi. Þar er þeim kennd félagsleg hæfni, læra að leika sér með vinum sínum o.s.frv. Þetta starfsfólk er ómissandi, er í ómissandi störfum. Það er með gott og notalegt viðmót og hefur gaman af því að kenna börnum, sinna daglegum athöfnum þeirra og dansa með þeim og syngja, skeina þeim, þvo hendur þeirra, gefa þeim að borða. Börn verða líka óörugg þegar það er mikil starfsmannavelta. Við vitum að starfsmannavelta orsakast að hluta til af óánægðu starfsfólki vegna launamisréttis og álagas í vinnu. Einnig ættu launin auðvitað að hækka í samræmi við verðbólgu. Semjið strax fyrir okkar framtíðar kynslóðir,“ sagði Erla Þórdís.

Sambandið vill ekki semja við þá launalægstu
Esther María sagði ekki hver sem er getur eða vill vinna á leikskóla. Hún sagðist þekkja til þess að þeir sem hafa hafið störf á leikskóla voru fljótir að hætta þar störfum sökum álags og áreitis.

Esther Þórdís Traustadóttir ræðir við framkvæmdastjóra SÍS, Arnar Þór Sævarsson, og krefst þess að sambandið gangi frá kjarasamningi. 

 

„Við vitum það öll að það vantar starfsfólk á flest alla leikskóla hér á landi og þá er mikilvægt að halda í það starfsfólk sem við höfum á leikskólum barnanna okkar. Þetta starfsfólk velur sér þennan starfsvettvang og velur sér að vinna með börnunum okkar. Ég meina, hversu geggjað flott er þetta mikilvæga fólk. Ófaglærðir leikskólastarfsmenn ásamt leikskólakennurum hugsa um og sinna því mikilvægasta sem við eigum, börnin okkar! Samband íslenskra sveitafélaga segja NEI við afturvirka eingreiðslu upp á 128 þúsund krónur sem er um 0,3 prósent af heildar launagreiðslum sveitarfélaganna. Það myndi enginn samþykkja að fá lægri laun en vinnufélagi sinn fyrir sömu störf. Okkur er boðið þetta. Hvað er að þessu landi? Afhverju er ekki hægt að borga almennileg laun og sína fólkinu lágmarks virðingu? Nú þurfa sveitarfélögin og Samband íslenskra sveitafélaga að girða á sig brók og semja áður en þetta endar illa, því þetta bitnar á öllu samfélaginu,“ sagði Esther full af eldmóði og baráttuhug.


Esther með börnum sínum Kára Þór og Maríu Rós.

 

SÍS hvetur til verkfallsbrota
Þá sagði Esther að sambandið hvetji starfsmenn KÍ og BHM að ganga í störf félagsfólks BSRB sem eru í verkfalli. „Þau eru hvött til að gefa leyfi til að mæta í vinnu með börnin sín sem komast ekki í leikskólann sökum verkfalls. Þá hvetja þau til að veita leyfi til að aðstoðarleikskólastjórar leysi af inn á deildum. Færa börn á milli deilda og einnig sameina börn af fleiri deildum yfir á eina deild. Samband íslenskra sveitarfélaga eru tilbúin að láta draga sig fyrir félagsdóm. Þetta er fáránlegt!

Eyðum misrétti, leiðréttum launamismun, áfram jafnrétti! Krefjumst sömu launa fyrir sömu störf!“ hrópaði Esther yfir mannfjöldan.


  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)