Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

8. júní 2023

„Ef það er vilji þá er vegur“

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum ráðherra, segir að SÍS þurfi að hlusta á sanngirnisrök og tryggja að fólk fái sömu laun fyrir sömu störf. Ljósm./Arnþór Birkisson

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði í gær á samfélagsmiðli sínum að tímabært væri að sveitarfélögin skipti um kúrs, hætti að hengja sig í formrök og tryggi að launafólki sé ekki mismunað, heldur fái sömu laun fyrir sömu störf.

„BSRB á núna í harðri kjarabaráttu og tekur eiginlega við keflinu þar sem Efling sleppti því. Bæði félögin eru undir forystu kvenna og berjast fyrir því að störf hefðbundinna kvennastétta verði metin að verðleikum. Atvinnurekendur taka fast á móti, vísa í prinsipp í kjaraviðræðum og nota formrök til að réttlæta ósveigjanleika sinn,“ segir Ingibjörg Sólrún.

Hún segir að formrök eiga vissulega erindi í samningaviðræðum en þau geti þó ekki vikið til hliðar öllum sanngirnis- og réttlætisrökum og tekur sem dæmi þegar Katrín Jakobsdóttir snéri af leið og fór að hlusta á sanngirnis- og réttlætisrök.

„Forsætisráðherra greip líka fyrst til formraka þegar umræðan kom upp um launhækkanir æðstu ráðamanna og benti á að um aðferðina hefði verið víðtæk sátt þegar henni var komið á. En fyrirkomulagið var auðvitað ekki klappað í stein og hún hafði vit á að hlusta á sanngirnis- og réttlætisrök og skipta um kúrs.“

Þá sagði Ingibjörg Sólrún að viðsemjendur BSRB eigi að taka sér þetta til fyrirmyndar.

„Sveitarfélögin verða líka að skipta um kúrs, hætta að hengja sig í formrök og tryggja að allir fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Ef það er vilji þá er vegur.“

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, deilir pistli Ingibjargar Sólrúnar með lyndistákninu - beint í mark. Bæði Sonja Ýr og Þórarinn Eyfjörð, varaformaður BSRB, hafa bent á þetta óréttlæti SÍS gagnvart starfsfólki sínu og sagt í fjölmiðlum það vera sannigrinskröfu að félagsfólk BSRB njóti sömu kjara og réttinda til jafnræðis við annað starfsfólk í sömu störfum.

Miðstjórn ASÍ lýsir yfir fullum stuðningi við verkfallsaðgerðir BSRB. Eins hafa Efling, VR og BHM lýst yfir stuðningi sínum.

Lesa má pistil Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur hér.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)