Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

5. júlí 2023

Kjarasamningur undirritaður við Skálatún

Samkomulag um framlengingu og breytingar á kjarasamningi milli Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Skálatúns var undirritað um kl. 12:00 í dag.

Kynningafundur um kjarasamninginn verður haldinn á Teams föstudaginn 7. júlí klukkan 10:00. Um leið verður opnað fyrir atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn og mun kosningin standa yfir til kl. 12:00 þriðjudaginn 11. júlí. Kosning fer fram með rafrænum hætti inn á mínum síðum og þar mun félagsfólk einnig gata nálgast samninginn undir ,,Mín kjör“.

Tenglar á Teams fundina verða sendir í tölvupósti í dag til félagsfólks í Sameyki sem starfar hjá Skálatúni.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)