Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

19. september 2023

Trúnaðarmannaráðsfundur: Baráttan framundan er um hvernig efnahagsmálum er stjórnað

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

Þórarinn Eyfjörð setti fund í trúnaðarmannaráði Sameykis sem hófst upp úr klukkan eitt í dag í Gullhömrum í Grafarvogi. Hann bauð nýja trúnaðarmenn velkomna á fundinn og kynnti dagskrá fundarins. Mjög góð mæting er á fundinum en dagskráin samanstendur af erindi formanns BSRB, kosningu í uppstillingarnefnd vegna aðalfundar 2024, skipun í fulltrúarráðs fjölmenningarráðs Reykjavíkurborgar, kjarasamningar og loks fræðslumál.

„Síðasta vor var haldinn kosning í trúnaðarmannaráð og það er sérstaklega mikið fagnaðarefni að sjá ykkur svo mörg ný hérna í dag. Það má segja að algjör endurnýjun hafi orðið í ráðinu. Allir þræðir liggja í gegnum trúnaðarmannaráðið og án þess er sambandslaust við félagið. Verið öll velkomin hingað í dag,“ sagði Þórarinn.

Við erum sterkust saman
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, hélt erindi sem hún nefndi, Saman vinnum við stóru sigrana. Þetta erindi flutti hún áður á ráðstefnu NTR sem haldin var í júní sl. Hún vonaði að erindið myndi hjálpa trúnaðarmönnum til að móta stefnuna í kjarasamningum en líka til að eiga samræður um hvernig ríkisstjórnin tekur ákvarðanir sem varðar launafólk og samfélagið í heild sinni. Sonja Ýr sagði að hvernig við sem þjóð mælum hagvöxt sé úrelt.

„Ef við æltum að byggja upp samfélag samkenndar og velsældar þarf að stokka upp hvernig efnahagsmálum er stjórnað og hvernig „kökunni“ er skipt,“ sagði Sonja Ýr.


Fjölmenni var á trúnaðarmannaráðsfundi Sameykis.

Þá spurði hún salinn hvort þau þekki til að ríkisstjórnin hafi sett hér á landi velsældarmælikvarða. Fáir ef nokkrir minntust þess.

„Það var gert fyrir nokkrum árum og í raun er ríkisstjórnin núna að kynna velsældarmælikvarða á fundi Sameinuðu þjóðanna þessa dagana. Það sem ríkisstjórnin er að kynna er velsæld út frá heildarhagvexti. Hún er ekki að nota þær á grundvelli breytilegra hópa í samfélaginu eins og við viljum gera með því að mæla velsæld og hagvöxt út frá hópum innan samfélagsins. Með því að huga að og bæta hag hópanna verða þeir ekki út undan í velsældarmælikvarðanum. Um er að ræða fyrst og fremst störf kvennastétta í umönnunargeiranum og þeim sem starfa grunnþjónustunni. Ef við tryggjum ekki fjárhagslegt sjálfstæði kvenna getum við ekki tryggt öryggi þeirra. Við megum ekki gleyma þessum hópum þegar við mótum stefnuna,“ sagði Sonja Ýr.


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)