Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

23. nóvember 2023

Réttindanefnd BSRB stóð fyrir fræðsludegi

Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar og formaður Réttindanefnda íræðupúlti á fundinum.

Fræðsludagur Réttindanefndar BSRB var haldinn í félagamiðstöðinni í gær.  Þangað komu fulltrúar frá Fjársýslu ríkisins og Vinnueftirlitinu með fræðsluerindi. Réttindanefnd BSRB heldur tvo fræðslufundi á hverju ári þar sem markmiðið er að bjóða starfsfólki og félagslega kjörnum fulltrúum aðildarfélaga BSRB fræðslu um ýmis atriði. Í þetta skipti var annars vegar fjallað um Vinnustund og hins vegar um vinnuslys.

Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar og formaður Réttindanefndar, var með inngangsorð og bauð gesti velkomna.

Frá Fjársýslu ríkisins komu þau Arngrímur V. Angantýsson og Guðrún J. Haraldsdóttir sem eru sérfræðingar hjá stofnuninni. Erindi þeirra fjallaði um virkni Vinnustundar og þau verkfæri sem eru í boði innan kerfisins fyrir yfirmenn, vaktasmiði og starfsfólk. Erindið var afar fróðlegt og voru gestir með margar spurningar sem þau fengu svör við.

Frá Vinnueftirlitinu kom Guðmundur Mar Magnússon, sérfræðingur á sviði Vinnuslysa. Hann fjallaði um vinnuslys, tilkynningarskyldu, fyrirbyggjandi aðgerðir og þróun í fjölda slysa. Í erindi Guðmundar kom fram að atvinnurekendum beri að skrá öll slys en að ekki séu öll slys tilkynningarskyld til stofnunarinnar. Hann fór m.a. yfir fimm stig forvarna og fjallaði um áhættumat sem allir vinnustaðir eiga að framkvæma.

Frétt af vef BSRB

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)