27. febrúar 2026
BSRB, BHM, KÍ og Fíh fordæma árás ríkisstjórnarinnar á réttindi opinberra starfsmanna

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, Magnús Þór Jónsson, Kolbrún Halldórsdóttir og Helga Rósa Másdóttir. Samsett mynd/Sameyki
BSRB, BHM, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands hafa sent sameiginlega Alþingi harðorða umsögn þar sem þau fordæma áform ríkisstjórnarinnar um að fella brott áminningarskyldu úr lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Bandalögin segja um að ræða beina atlögu að réttaröryggi opinberra starfsmanna og varað er við því að breytingin muni veikja stöðu þeirra verulega gagnvart stjórnendum.
Í umsögninni er bent á að engin fagleg greining, engin gögn og enginn málefnalegur rökstuðningur liggi að baki tillögunni. Áminningarskyldan hafi um áratugaskeið verið grundvallarregla sem tryggi að starfsmaður fái skýra og formlega áminningu og raunhæft tækifæri til úrbóta áður en gripið er til uppsagnar. „Afnám áminningarskyldu felur í sér verulega skerðingu á réttaröryggi starfsmanna ríkisins og veikir stöðu þeirra gagnvart stjórnvöldum,“ segir í umsögninni.
Samtökin hafna því alfarið að hægt sé að setja óformlegt „leiðbeinandi samtal“ í stað lögbundinnar áminningar. Slíkt fyrirkomulag tryggi hvorki gagnsæi né jafnræði og auki hættu á geðþóttaákvörðunum. Þá er gagnrýnt að samráð við stéttarfélög hafi verið ófullnægjandi þrátt fyrir að um sé að ræða breytingar á grundvallarréttindum þúsunda opinberra starfsmanna.
Þótt frumvarpið taki formlega aðeins til ríkisstarfsmanna er ljóst að um er að ræða grundvallarreglu sem einnig er fest í kjarasamningum á öðrum sviðum hins opinbera, þar á meðal hjá Reykjavíkurborg. Verði ákvæðið fellt úr lögum er hætt við að það grafi undan sambærilegum verndarákvæðum annars staðar á opinbera vinnumarkaðnum og marki hættulegt fordæmi gegn réttindum opinberra starfsmanna í heild.
Með frumvarpinu er verið að færa aukið vald til stjórnenda á kostnað starfsfólks og veikja þær varnir sem tryggja faglega og málefnalega málsmeðferð. Sameyki telur slíka vegferð óásættanlega og tekur skýrt undir gagnrýni verkalýðshreyfingarinnar.
Sjá umsögn BSRB, BHM, KÍ og Félag hjúkrunarfræðingar hér
Sjá eldri umfjallanir og fréttir Sameykis um málið: