20. mars 2026
Höfnum afnámi áminningarskyldu — herferðin hefst í dag

Upplýsingasíðan, Góð áminning, hefur verið opnuð.
Fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi í gær á Alþingi um afnám áminningarskyldu úr lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Með frumvarpinu er lagt til að fella brott grundvallarreglu sem um áratugaskeið hefur tryggt opinberum starfsmönnum formlega málsmeðferð og raunhæft tækifæri til úrbóta áður en gripið er til uppsagnar.
Sameyki, BSRB og fleiri samtök launafólks hafna þessum áformum alfarið. Áminningarskyldan er ekki formsatriði heldur mikilvæg vernd sem stuðlar að sanngirni, jafnræði og faglegri stjórnsýslu. Með því að fella hana brott er verið að veikja réttaröryggi starfsfólks og færa aukið vald í hendur stjórnenda án þess að tryggja skýra og gagnsæja málsmeðferð.
HÖFNUM AFNÁMI ÁMINNINGARSKYLDU
RÉTTARÖRYGGI OPINBERRA STARFSMANNA ER EKKI SAMNINGSATRIÐI
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ →
Á sama tíma og opinberir vinnustaðir glíma við manneklu, aukið álag og vaxandi veikindatíðni er óskiljanlegt að stjórnvöld kjósi að veikja réttindi starfsfólks í stað þess að styrkja starfsskilyrði. Slíkar breytingar munu ekki bæta þjónustu við almenning heldur auka óöryggi og tortryggni á vinnustöðum.
Afnám áminningarskyldu snertir ekki aðeins ríkisstarfsmenn. Sambærileg verndarákvæði eru fest í kjarasamningum víða á opinbera vinnumarkaðnum og því er hér um að ræða grundvallarspurningu um réttindi opinberra starfsmanna í heild. Samtökin standa sameiginlega að upplýsingavefnum Góð áminning þar sem launafólk getur kynnt sér málið nánar og fylgst með framvindu þess. Upplýsingaefni fer inn á síðuna eftir því sem herferðinni vindur fram. Fylgist með.
Sameyki mun standa vörð um réttindi félagsfólks síns og hafna öllum tilraunum til að veikja þau réttindi sem byggð hafa verið upp í áratugi.