26. mars 2026
Ársskýrsla Sameykis komin á vefinn

Ársskýrsla Sameykis fyrir árið 2025 er nú aðgengileg á vef félagsins. Í skýrslunni er farið yfir helstu verkefni, áherslur og árangur starfsins á liðnu ári og gefur hún góða mynd af umfangsmikilli og fjölbreyttri starfsemi í þágu félagsfólks.
Árið 2025 einkenndist af öflugri réttindabaráttu, aukinni og markvissari þjónustu við félagsfólk og áframhaldandi uppbyggingu innan félagsins. Sérstök áhersla var lögð á að standa vörð um kjör og réttindi, efla ráðgjöf og styrkja innviði Sameykis til framtíðar.
Þá má einnig sjá í skýrslunni yfirlit um vöxt félagsins, en í lok árs voru liðlega 14.000 virkir félagsmenn, auk þess er fjallað um öflugt fræðslustarf, kynningar- og útgáfumál, störf trúnaðarmanna, sjóði félagsins og fjölbreytta þjónustu svo sem orlofskerfi og styrki.
Félagsfólk er hvatt til að kynna sér ársskýrsluna og fá þannig heildstæða sýn á starfsemi Sameykis og þau fjölmörgu verkefni sem unnin eru í þeirra þágu.
Aðalfundur félagsins verður í dag kl. 16:30 á Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 28, í fundarsalnum Háteigi á efstu hæð.
Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn.
Skráning á aðalfund