Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Framkvæmd könnunar

Stofnun ársins var að þessu sinni framkvæmd í nóvember og desember á síðasta ári. Það er í fyrsta skipti sem Stofnun ársins er framkvæmd á þessum tíma. Fyrri ár hefur framkvæmd könnunarinnar farið fram í febrúar og mars. Aðrar breytingar við framkvæmd voru breyttir stærðarflokkar stofnana, en með stækkun og sameiningu stofnana hafa æ færri stofnanir verið í minnsta stærðarflokknum og því nauðsynlegt að breyta þeim. Þá var sú breyting að Kjara- og mannauðssýslan útbjó lista yfir allt starfsfólk ríkisstofnana. Listar komu því ekki nema að takmörkuðu leyti frá stofnununum sjálfum. Líkt og áður eru Fjármála og efnahagsráðuneytið, Mannauðsdeild Reykjavíkurborgar og Sameyki í samstarfi um könnunina. Ríkið tekur þátt í könnuninni fyrir alla starfsmenn ríkisins burtséð frá félagsaðild.

Sameyki býður öllum stofnunum utan ríkisins að taka þátt í könnuninni fyrir allt starfsfólk – án tillits til þess hvort starfsfólkið sé í Sameyki eða ekki. Þetta gildir um stofnanir sveitarfélaga, sjálfseignarstofnanir og fyrirtæki borgarinnar. Þær stofnanir greiða sjálfar fyrir þátttöku þeirra sem eru ekki í Sameyki. Átta slíkar stofnanir tóku þátt: Bændasamtök Íslands, Heilsustofnun NLFÍ, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), Matís ohf., Orkubú Vestfjarða (OV), Reykjalundur, Sjálfsbjargarheimilið og Félagsbústaðir.

Um könnunina
Val á stofnun og fyrirtæki ársins er samstarfsverkefni margra aðila; Sameykis, Kjara- og mannauðssýslunnar og svo stofnananna sjálfra. Niðurstöður könnunarinnar veita afar mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða og samanburð við aðrar stofnanir. Einnig er hægt að bera saman starfsumhverfi stofnana og fyrirtækja á almennum markaði þar sem VR framkvæmir sambærilega könnun, Fyrirtæki ársins, meðal fyrirtækja.

Tilgangur könnunarinnar
Tilgangur með vali á stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri í mannauðsstjórnun. Þá nýtist könnunin stjórnendum til að vinna að umbótum í stjórnun og starfsumhverfi. Að lokum veitir könnunin aðhald til hagsbóta fyrir starfsfólk, skjólstæðinga, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.

Spurningalisti er lagður fyrir starfsfólk á netinu. Mælingin nær yfir níu ólíka þætti en þannig fæst heilsteypt mynd af innra starfsumhverfi stofnana. Þáttagreining (factor analysis) var notuð til að greina þá undirliggjandi þætti sem eru mældir. Í megindráttum komu fram níu þættir: Stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægja og stolt og jafnrétti. Vægi þáttanna í heildareinkunn ákvarðast af þáttagreiningunni (sjá myndin hér á síðunni) en stofnunum er síðan raðað eftir heildareinkunninni.

Alls fengust gild svör frá ríflega 13.300 starfsmönnum og er það lítið eitt meira en á síðasta ári. Þar af bárust svör frá ríflega 12.000 starfsmönnum ríkisstofnana og sjálfseignarstofnana og ríflega 1.200 starfsmönnum sveitarfélaga og fyrirtækja borgarinnar. Svarhlutfall, gildir listar af endanlegu úrtaki, var rúmlega 43%.

Stofnanir á lista
Stofnunum er gróflega skipt í tvo flokka: Annarsvegar sveitarfélög og borgarstofnanir og hins vegar ríkisstofnanir og sjálfseignarstofnanir.

Að baki valinu á Stofnun ársins liggja niðurstöður stofnana sem uppfylla skilyrði um svörun (35% svarhlutfall og að lágmarki 5 svör) og byggir sá hluti á tæplega 12.000 svörum hjá ríkisstofnunum og sjálfseignarstofnunum en aðeins ríflega 400 svörum hjá borg og bæ.

Heildarfjöldi stofnana sem komst á lista þetta árið voru 152 í flokki ríkisstofnana og sjálfseignarstofnana, en 14 í flokknum borg og bær. Í síðustu könnun sem var framkvæmd í febrúar og mars 2020 komust 143 stofnanir á lista í flokki ríkisstofnana og sjálfseignarstofnana, en 20
í flokknum borg og bær. Heildarfjöldi stofnana er því svipaður og fyrri ár.

Þátttökuskilyrði
Til að stofnun nái inn á listann þarf svarhlutfall að vera að lágmarki 35% – þá er miðað við svarhlutfall af útsendum spurningalistum. Fimm svör þurfa að berast frá stofnun að lágmarki, en auknar kröfur eru gerðar um fjölda svara eftir því sem starfsfólki stofnunarinnar fjölgar.

Könnunin náði til allra ríkisstofnana sem og til allra félagsmanna Sameykis sem eru í 30% starfi eða meira og höfðu verið félagsmenn í a.m.k. þrjá mánuði. Félagsmenn Sameykis starfa víða, t.d. í sveitarfélögum (aðallega Reykjavík, Akranesi og Seltjarnarnesi), fyrirtækjum borgarinnar, á sjálfseignarstofnunum eða stofnunum í eigu annara en ríkisins. Þessar stofnanir eru einnig með í vali á stofnun ársins svo fremi sem þær uppfylli almenn þátttökuskilyrði. Þá geta þessar stofnanir óskað eftir þátttöku í Stofnun ársins og boðið öllu starfsfólki að svara könnuninni.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)