Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

100 ár í þágu borgarstarfsmanna – fögnum sögu St.Rv.

Kl: 15:00-17:00
Staðsetning: Ráðhús Reykjavíkur, Tjarnarsalur

Laugardaginn 17. janúar næstkomandi eru liðin 100 ár frá stofnun Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar (StRv), sem er annað af stofnfélögum Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu sem var stofnað snemma árs 2019.
Af því tilefni ætlar Sameyki að halda opið hús í Tjarnarsal í Ráðhúsi Reykjavíkur milli kl. 15:00 og 17:00, þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og notalega samveru.
Guðrún Gunnarsdóttir sér um veislustjórn, Stefán Pálsson sagnfræðingur fer yfir sögu St.Rv. og núverandi formaður Sameykis ásamt fyrrverandi formönnum segja frá starfi og baráttu félagsins í gegnum tíðina.
Katrín Halldóra Sigurðardóttir flytur söngatriði og Sunna Gunnlaugs, djazzpíanisti, annast undirleik milli atriða. Þá verður myndasýning í salnum sem varpar ljósi á sögu félagsins.

Vinsamlega skráðu þig hér