Matur og loftslagsbreytingar
Matur og loftslagsbreytingar, matvælaframleiðsla ber ábyrgð á um 1/4 af losun gróðurhúsloftegunda á heimsvísu. því skiptir gríðarlega miklu máli að við séum meðvituð um hvað við veljum á diskinn okkar, hvernig við meðhöndlum það og nýtum. Enginn einn getur gert allt, en við getum öll gert eitthvað.
Á þessu námskeiði munum við fara yfir hvaða matur er með þyngsta kolefnissporið og hvernig við getum notað annað hráefni. Við vinnum með mismunandi grænmetisrétti og förum ýtarlega yfir nýtingu og hvernig sporna megi við matarsóun.
Síðast en ekki síst eldum við fjölbreytta loftslagsvæna rétti og setjumst niður og borðum saman. Ekki viljum við að neitt fari til spillis og því er gott að taka með sér box til að taka mat með heim.
Allir þáttakendur elda nokkra rétti sem við síðan borðum saman í lok námskeiðs.
Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér eitthvað sem hefur dagað upp í skápum, t.d þurrvöru og við notum það m.a. til að töfra fram nýjan mat.
Skráning hér