Fræðsla fyrir fólk í stjórn og stjórnum sjóða
Kl: 15:00-17:00
Staðsetning: Grettisgata 89, 1. hæð, 105 Reykjavík
Um er að ræða fræðslu fyrir kjörna fulltrúa í stjórn og stjórnum sjóða þar sem fjallað verður um uppbyggingu Sameykis, hlutverk kjörinna fulltrúa í stjórnum, jafnrétti/jafnræði og fræðslumöguleika. Hugmyndin er að bæði endurkjörnir og nýkjörnir í stjórnum hittist og geti spjallað og miðlað reynslu. Um er að ræða staðnám, en einnig verður möguleiki á að sækja fræðsluna í fjarfundi.