Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Kjarasamninga strax! Baráttufundur

Kl: 17:00-18:00
Staðsetning: Háskólabíó

Opinberir starfsmenn hafa fengið sig fullsadda af skeytingarleysi viðsemjenda nú þegar tíu mánuðir eru liðnir frá því kjarasamningar losnuðu. BSRB, Bandalag háskólamanna og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga boða til baráttufundar fyrir félagsmenn sína þar sem þess verður krafist að opinberir launagreiðendur gangi þegar í stað til kjarasamninga við starfsfólk sitt.

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 30. janúar milli klukkan 17 og 18 í aðalsal Háskólabíós. Streymt verður frá fundinum beint á fundi aðildarfélaga BSRB og BHM í Hofi á Akureyri og víðar um land.

Kjarasamningar þorra opinberra starfsmanna hafa verið lausir frá 1. apríl 2019 og hafa viðræður við ríki og sveitarfélög gengið afar hægt. Þolinmæði félagsmanna og samninganefnda er löngu þrotin og kominn tími á að efla samstöðuna og undirbúa aðgerðir.

Á baráttufundinum í Háskólabíói munu eftirtalin flytja stutt ávörp:

 Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
 Laufey Elísabet Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands, fyrir hönd BHM.
 Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
 Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
 Árni Stefán Jónsson, formaður Sameykis.

Milli ávarpa munu Jónas Sig og ritvélar framtíðarinnar og Reykjavíkurdætur taka nokkur lög.

Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburði fyrir fundinn.

Á sama tíma verður fundinum streymt á eftirfarandi staði. Við hvetjum allt okkar félagsfólk til að mæta og sýna samstöðu.

Akureyri
Hof
Strandgötu 12

Ísafjörður
Skrifstofa FOSVest
Aðalstræti 24, 3.hæð

Grundarfjörður
Skrifstofa Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu
Borgarbraut 1a

Reykjanesbær
Skrifstofa Starfsmannafélags Suðurnesja
Krossmóar 4a

Borgarnes
Matsalur grunnskólans í Borgarnesi
Gunnlaugsgötu 13

Sauðárkrókur
Kaffistofa Skagafjarðarveitna

Háskólinn á Hólum
Stofa 202


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)