Fræðslufundur um B-deild LSR
Fræðslufundur um lífeyrismál fyrir félagsmenn aðildarfélaga BSRB, þar á meðal Sameyki, sem eru virkir sjóðfélagar í B-deild LSR og eru að nálgast starfslok. Fundirir fara fram í sal á jarðhæð í húsnæði BSRB við Grettisgötu 89.
Sjóðfélagar eru beðnir um að skrá sig á fundinn fyrir 22. janúar næstkomandi. Hægt er að hringja í síma 525 8306 eða senda tölvupóst á netfangið johanna@bsrb.is. Tilgreina þarf nafn, kennitölu, aðildarfélag og hvort greitt er í A- eða B-deild LSR.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn fyrir þá sem hafa áhuga á því og eiga ekki heimangengt með því að smella hér um það leyti sem fundurinn er að hefjast.