16. júní 2023
Gæludýr í orlofshúsum Sameykis
![Gæludýr í orlofshúsum Sameykis - mynd](/library/Myndir/Frettamyndir/2023/Hundur.jpg?proc=frontPage)
Sagt er að hundurinn sé besti vinur mannsins. Hjá Sameyki eru fimm orlofshús sem leyfa hunda. Mikilvægt er að þrífa upp eftir hundana sína sem gjarnan gera þarfir sínar á grasblettum í kringum húsin. Einnig þegar farið er í göngutúr með þá í nágrenninu á orlofssvæðunum, að hafa með skítapoka til að hirða upp eftir þá.
Við minnum félagsfólk á að ekki er leyfilegt að vera með fjölda hunda í orlofshúsum Sameykis. Hægt er að skoða orlofshús sem leyfa gæludýr í Orlofsblaði Sameykis.