Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

24. mars 2023

Látum þau bara borga brúsann

Þóarinn Eyfjörð, formaður Sameykis. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson

„Ef ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur væri umhugað um þjóðina myndi hún styrkja samstöðuna og vinna að jafnara samfélagi. Í samvinnu við fólkið í landinu, almennt launafólk, yrðu settar hér haldgóðar reglur um hinn frjálsa markað og réttláta skiptingu auðlegðar lands og þjóðar.“

Eftir Þórarin Eyfjörð

Í vikunni hækkuðu stýrivextir um eitt prósentustig og ekki verður annað séð en að það sé meðvituð stefna ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að láta raðstýrivaxtahækkanir Seðlabanka Íslands lenda sem mest og verst á almennu launafólki. Við höfum séð hvernig skaðræðisáhrif stýrivaxtahækkana lenda á almennu launafólki; hækkun húsnæðislána, hækkun á þjónustu, hækkun á nauðsynjavörum og lækkun kaupmáttar.

Við erum ekki í þessu saman eins og ríkisstjórnin vill vera láta, heldur eru láglauna- og millitekjuhóparnir það fólk sem þessi hagstjórn bitnar verst á. Ungar fjölskyldur sem hafa á undanförnum árum fjárfest í dýru húsnæði eru komnar í mikinn vanda vegna ört vaxandi kaupmáttarrýrnunar því ríkisstjórnin vill ekki skattleggja fjármagnseigendur, hækka bankaskatt, gera kröfur á arð stórútgerðarinnar og stórfyrirtækja og allra síst styggja vini sína í fjármagnstekjukampavínsbaðinu. Hér er verið að hlífa breiðu bökunum og varpa ábyrgðinni á þá hópa samfélagsins sem bera nú þegar þyngstu byrðarnar. Þetta getur ekki haldið svona áfram. Núverandi ríkisstjórn vinnur að sundrungu á vinnumarkaði og sundrungu í samfélaginu þegar við þurfum samstöðu til að mæta framtíðinni.

Við þessar aðstæður vex verðbólgan hratt því fyrirtækin velta bæði stýrivaxtahækkunum og launahækkunum beint ofan í buddu almennings. Okkur er talin trú um að við búum við svokallaðan frjálsan markað en ríkisstjórnin hefur skapað hér á landi reglulausan markað án eftirlits. Kjörveiðilendur kapítalistanna.

Ef ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur væri umhugað um þjóðina myndi hún styrkja samstöðuna og vinna að jafnara samfélagi. Í samvinnu við fólkið í landinu, almennt launafólk, yrðu settar hér haldgóðar reglur um hinn frjálsa markað og réttláta skiptingu auðlegðar lands og þjóðar.

Bankarnir stórgræða á vaxtaákvörðunum Seðlabankans. Þrír stærstu bankarnir högnuðust um 70 milljarða króna á síðasta ári og vaxtatekjur þeirra, sem eru stærsta tekjulind bankanna, jukust um 24 prósent milli ára. Þá greiddu þessir þrír bankar sér út samtals 64,8 milljarða króna í arð og þar fór Arion banki hamförum í arðgreiðslum og greiddi út 32,3 milljarða til eigenda sinna.

Nú er búið að semja að stærstum hluta við launafólk á almennum vinnumarkaði. Síðan þeir samningar voru undirritaðir hefur verðbólga aukist, stýrivextir hækkað og kaupmáttur launa dregist saman. Við þurfum ekki að kalla til neina sérfræðinga til að sjá að kjarasamningar sem undirritaðir voru eru brostnir í þessari ringulreið og úrræðaleysi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna, sem vel á minnst kenna sig við félagshyggju. Þvílík öfugmæli.

Horfum lengra fram í tímann þegar skammtímakjarasamningar á vinnumarkaði losna eftir u.þ.b. níu mánuði. Hvað blasir þá við? Það er ljóst að allur vinnumarkaðurinn mun gera kröfur um kaupmáttaraukningu og sanngjarnari skiptingu auðsins í landinu.

Vel að merkja. Hvaða plan ætli ríkisstjórn Katrínar hafi til að mæta til leiks þá? Er masterplanið að láta almennt launafólk einfaldlega borga brúsann áfram?

Höfundur er formaður Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og 1. varaformaður BSRB.

Greinin birtist fyrst á visir.is


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)