Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

5. desember 2022

Villt vísvitandi um fyrir almenningi

„Ég er nú bara á þeirri skoðun að opinberum starfsmönnum hafi fjölgað of mikið í íslensku samfélagi. Það er bara frekar flókið, ef ég tala bara mannamál, að segja upp opinberum starfsmönnum. Því þarf að breyta,“ sagði Hildur í Vikulokunum. Samsett mynd/Rúv.

Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, gangrýnir í pistli á vef Sameykis málflutning Hildar Björnsdóttur, borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í útvarpsþættinum Vikulokin á Rás 1 sl. laugardag. Þar heldur hún því fram að opinberi vinnumarkaðurinn leiði launaþróunina í landinu. Í pistlinum sem birtist fyrst á Vísi segir hann að Hildur hafi vitnaði í skýrslu Kjaratölfræðinefndar máli sínu til stuðnings.

Kjaratölfræðinefnd mælir launaþróunina á vinnumarkaði og þar kemur skýrt fram að almenni launamarkaðurinn er leiðandi á launamarkaðnum. Formaður Sameykis segir óábyrgt af stjórnmálafólki að kynna sér ekki staðreyndir um launaþróunina á vinnumarkaði; halda úti áróðri gegn opinberu starfsfólki og grunnþjónustunni og það væri alvarleg afbökun.

„Hið rétta er að almenni launamarkaðurinn leiðir launamyndunina á vinnumarkaði. Í lífskjarasamningnum, sem almenni markaðurinn leiddi, var samið um fastar krónutöluhækkanir en ekki um prósentur,“ segir Þórarin í pistli sínum. Launasetning þessa fólks sést vel þegar litið er á niðurstöður Kjaratölfræðinefndar sem hún vitnaði ótt og títt ranglega í.“

Þá gagnrýnir Þórarinn málflutning oddvita Sjálfstæðisflokksins um að geta ekki sagt opinberu starfsfólki upp fyrirvaralaust að eigin geðþótta.

Lesa má pistil formanns Sameykis hér.


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)