Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

2. febrúar 2024

Námskeið á vorönn hjá Félagsmálaskóla alþýðu fyrir trúnaðarmenn

Trúnaðarmenn á fundir trúnaðamannaráðs hjá Sameyki. Ljósmynd/BIG

Fjöldi námskeiða er í boði fyrir trúnaðarmenn í vor hjá Félagsmálaskóla alþýðu. Um er að ræða staðnámskeið annars vegar og vefnámskeið hins vegar sem byggjast á upptökum og fjarnámskeið sem kennd eru í gegnum Zoom.

Öll staðnámskeið eru haldin í félagamiðstöðinni í BRSB-húsinu, Grettisgötu 89, 1. hæð. Öll vef- eða fjarnámskeið eru haldin með Zoom fjarfundarformi.

Trúnaðarmaðurinn, starf hans og staða
4. mars 11:00 – 15:45, Grettisgötu 89, 1. hæð
Megináhersla er lögð á hlutverk og starf trúnaðarmannsins samkvæmt gildandi lögum og kjarasamningum. Hvaða þekkingu þarf trúnaðarmaður að hafa og hvar getur hann leitað sér upplýsinga um túlkanir á gildandi kjarasamningum og vinnurétti. Einnig er farið yfir meðhöndlun umkvartana samstarfsfólks og hvað ber að hafa í huga við úrvinnslu þeirra.

Skráningu lýkur 27. febrúar. Nauðsynlegt er fyrir nemendur að hafa meðferðis fartölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma á námskeiðið.

 

Skráning á námskeið um störf trúnaðarmanna


Samningatækni – Að ná samkomulagi á vinnustað
9. apríl 11:00 – 15:45, Grettisgötu 89, 1. hæð
Á námskeiðinu er farið yfir hvað þarf að hafa í huga þegar ná þarf samkomulagi á vinnustað. Skoðað er hverjir koma að borðinu í deilum og hverjir hafa umboð til að taka ákvarðanir. Einnig hvernig unnið er að niðurstöðu í málum.

Skráningu lýkur 3. apríl. Nauðsynlegt er fyrir nemendur að hafa meðferðis fartölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma á námskeiðið.

 

Skráning á námskeið í samningatækni

 

Fjarnámskeið: Samskipti á vinnustað
6. febrúar. 9:00 – 12:00. Kennt á Zoom
Verð 8900 kr. Hægt er að fá leyfi hjá sínu stéttarfélagi til að greiða fyrir námskeið. Þá er kennitala stéttarfélagsins sett í reitinn „greiðandi“ við skráningu.

Farið er yfir hvað einkennir góð samskipti á vinnustað og hvernig megi stuðla að þeim. Skoðuð er mismunandi framkoma, áhrif hennar á okkur og aðra. Nemendur kynnast afleiðingum langvarandi slæmra samskipta, hvernig bregðast eigi við og hver er ábyrgð gerenda og launagreiðenda.

 

Skráning á fjarnámskeið um samskipti á vinnustað


Fjarnámskeið: Þjóðfélagið og vinnumarkaðurinn
20. febrúar. 9:00 – 12:00. Kennt á Zoom
Verð 8900 kr. Hægt er að fá leyfi hjá sínu stéttarfélagi til að greiða fyrir námskeið. Þá er kennitala stéttarfélagsins sett í reitinn „greiðandi“ við skráningu.

Fjallað er um þjóðfélag, samfélag og ýmis hugtök tengd því. Einnig er farið í uppbyggingu og hlutverk stéttarfélaga og hagsmunasamtaka launafólks og atvinnurekenda. Uppbygging vinnumarkaðarins, hverjir eru viðsemjendur, samningaviðræður og gildi kjarasamninga. Í lokin er farið yfir tölulegar upplýsingar tengdum vinnumarkaðnum, þróun launa, og framtíðarspár.

Skráningu lýkur 19. febrúar.

 

Skráning á fjarnámskeið um þjóðfélagið og vinnumarkaðinn


Fjarnámskeið: Sjálfsefling
12. mars. Kennt á Zoom

Verð 8900 kr. Hægt er að fá leyfi hjá sínu stéttarfélagi til að greiða fyrir námskeið. Þá er kennitala stéttarfélagsins sett í reitinn „greiðandi“ við skráningu.

Nemendur kynnast því hvernig sjálfstraust einstaklinga hefur áhrif á samskipti. Einnig hvernig skortur á sjálfstrausti getur hamlað okkur í daglegur lífi. Nemendur kynnast leiðum til að efla sjálfstraustið og hvað getur haft áhrif á sjálfstraustið.

Skráningu lýkur 11. mars.


Skráning á námskeið um sjálfeflingu

Fjarnámskeið: Almannatryggingar og lífeyrissjóðir
19. mars. 9:00 - 12:00. Kennt á Zoom

Verð 8900 kr. Hægt er að fá leyfi hjá sínu stéttarfélagi til að greiða fyrir námskeið. Þá er kennitala stéttarfélagsins sett í reitinn „greiðandi“ við skráningu.

Megináhersla er lögð á tilurð og uppbyggingu almannatryggingakerfisins og lífeyrissjóðakerfisins. Farið er í hugmyndafræði íslenska lífeyrissjóðakerfisins, styrk þess og hvernig það byggir á samkomulagi verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda. Fjallað er um skylduaðild, tryggingarvernd og samspil lífeyrissjóðanna og almannatryggingakerfisins. Einnig er skoðuð réttindaávinnsla og taka lífeyris.

Skráningu líkur 18. mars.

 

Skráning á námskeið um lífeyrissjóði og almannatryggingar

 

Fjarnámskeið: Vinnueftirlit-vinnuvernd
26. mars. 9:00 – 12:00. Kennt á Zoom
Verð 8900 kr. Hægt er að fá leyfi hjá sínu stéttarfélagi til að greiða fyrir námskeið. Þá er kennitala stéttarfélagsins sett í reitinn „greiðandi“ við skráningu.

Megináhersla er lögð á hlutverk Vinnueftirlitsins og vinnuvernd á vinnustöðum. Hverjir eiga að sjá um eftirlit á vinnustöðum og hver sé ábyrgðaraðili að launamenn vinni í hollu og öruggu vinnuumhverfi. Einnig er farið yfir hlutverk öryggistrúnaðarmanna, öryggisvarða og öryggisnefnda og hvernig kosning og val þessara aðila fer fram.

Skráningu lýkur 25. mars.

 

Skráning á vinnueftirlit-vinnuvernd

 

Vefnám: Lestur launaseðla
Aðgengilegt 1. til 30. apríl

Verð 8900 kr. Hægt er að fá leyfi hjá sínu stéttarfélagi til að greiða fyrir námskeið. Þá er kennitala stéttarfélagsins sett í reitinn „greiðandi“ við skráningu.

Nemendur læra reiknitölur helstu launaliða, yfirvinnu, stórhátíðarkaups og vaktaálags. Nemendur kynnast grunnuppbyggingu launaseðla og launaútreikninga. Einnig er farið í úreikninga á staðgreiðslu skatta og þeirra iðgjalda í lífeyrissjóði og aðra sjóði sem skylt er að reikna og draga frá launum. Einnig er lögð áhersla á mikilvægi varðveislu launaseðla.

 

Skráning á námskeið um lestur launaseðla

 

Ath. að tímasetningar og framboð námskeiða getur tekið breytingum.