Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

7. febrúar 2024

Skilti með öryggisnúmeri í hvert hús í Munaðarnesi

Öryggisnúmer.

Stefnt er að því að klárað verði að setja upp skilti fyrir sumarið með GPS staðsetningu (öryggisnúmer) í orlofshús Sameykis í Munaðarnesi. Um er að ræða öryggismerkingu með fasteignanúmeri og neyðarnúmerinu 112 í hvert orlofshús á svæðinu. Tilgangur merkinganna er að auka öryggi félagsfólks og fjölskyldna þeirra sem dvelja í orlofshúsum félagsins á svæðinu ef upp koma neyðartilfelli. Þá er stefnt að því að setja upp eins skilti í öll önnur orlofshús í eigu félagsins.

Dæmi eru um að í neyðartilvikum hafi björgunaraðilar farið í rangt orlofshús vegna ónákvæmra upplýsinga um staðsetningu þess sem óskar eftir aðstoð.

Því geta öryggisnúmerin (GPS staðsetning) í hverju orlofshúsi komið í veg fyrir að mikilvægur tími björgunarliðs fari til spillis í neyðartilvikum. Þannig geta davalargestir með einföldum hætti látið vita ef vá steðjar að og látið Neyðarlínuna vita með því að hringja í 112 og gefið upp öryggisnúmerið.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)