Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

9. apríl 2024

Kjaradeilu vísað til ríkissáttasemjara

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari og Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis.

Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu og Félag flugmálastarfsmanna ríkisins vísuðu kjaradeilu sinni til ríkissáttasemjara 8. apríl 2024 eftir árangurslausar viðræður. Viðræðurnar hófust á milli aðila FFR og Isavia/SA þann 13. september 2023 sl. og kom Sameyki til viðræðna 19. febrúar 2024. Þá höfðu verið haldnir 11 fundir milli FFR við Isavia og SA. Félögin lögðu fram sameiginlega kröfugerð þann 25. mars 2024 og hafa verið haldnir þrír fundir síðan þá án árangurs.

Átjándi fundur samningsaðila var haldinn þann 8. apríl og var honum slitið kl. 16:35 án árangurs.

Samningsaðilar munu boða til sameignlegs félagsfundar með félagsfólki sem starfar hjá Isavia næstkomandi fimmtudag 11. apríl kl. 18:00. Staðsetning félagsfundarins verður send félagsfólki.

Kjarasamningar milli aðila runnu út þann 31. janúar 2024.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)