Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

16. apríl 2024

Aðlögun fólks með fötlun á vinnustað

Viðeigandi aðlögun er algjör forsenda þess að fólk með fötlun eða fólk með skerta starfsgetu eigi raunhæfan möguleika á að njóta jafnréttis og jafnra tækifæra á vinnumarkaði.

Starfsmennt fræðslusetur stendur fyrir fræðsluerindi 23. apríl um tækifæri fólks með skerta starfsgetu á vinnumarkaði.

Í fræðsluerindinu er leitast við að undirbúa starfsstaði til þess að taka á móti fólki með fötlun til starfa og stuðla þannig að inngildandi vinnumarkaði þar sem þátttaka allra er metin að verðleikum og tækifæri gefin.

Sérstaklega er fjallað um eftirfarandi þætti; hvað felst í viðeigandi aðlögun, hvaða þýðingu hún hefur bæði fyrir fatlaða einstaklinga, samstarfsfólk og vinnustaðamenningu.

 

Skráning hér