Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

30. apríl 2024

Kjaraviðræðum við Reykjavíkurborg vísað til ríkissáttasemjara

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari.

Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu og samninganefnd þess ákvað á fundi sínum í dag að vísa viðræðum um endurnýjun kjarasamninga Sameykis og Reykjavíkurborgar til ríkissáttasemjara.

Samningsaðilar hafa fundað í kjaradeilunni síðan 7. febrúar og telja fulltrúar samninganefndar Sameykis fullreynt að ná samkomulagi milli aðila án milligöngu ríkissáttasemjara.

Sameyki lagði fram kröfugerð í febrúar síðastliðnum. Félagsfólk sem samið verður fyrir telur um 5100 sem starfa hjá Reykjavíkurborg.