3. júlí 2024
Kjarasamningur Sameykis við SFV undirritaður
Samninganefndir SFV og Sameykis gengu frá fjögurra ára kjarasamningi í gær, þann 2. júlí.
Gildistími samningsins er frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.
Rafrænn kynningafundur á samningnum verður á morgun þann 4. júlí kl. 14:00. Tengill á fundinn verður sendur út síðar í dag.
Atkvæðagreiðsla um samninginn mun hefjast á sama tíma og mun félagsfólk fá sendan tölvupóst með nánari upplýsingum.
Atkvæðagreiðsa lýkur miðvikudaginn 10. júlí kl. 11:00.