Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Launakjör

Þátturinn „launakjör“ er byggður á spurningum um ánægju með laun, sanngirni launa og samanburði á eigin launum og launum annarra á sambærilegum vinnustöðum. Launakjör er sá þáttur könnunarinnar sem ávallt mælist lægstur/með minnstu ánægjuna.

Ef skoðuð er einkunn Sameykisfélaga sérstaklega (tæplega 3600 svör) og hún borin saman við einkunn þeirra sem eru utan Sameykis (tæplega 8400 svör) kemur í ljós að Sameykisfélagar gefa launakjörum heldur lægri einkunn en þeir svarendur sem standa utan Sameykis. Ríflega fjórðungur gefur launakjörum „góða einkunn“ en nærri tveir af fimm gefa launakjörum slæma einkunn. Ef ánægjan er skoðuð eftir geira þá eru það fyrirtæki borgarinnar sem gefa launakjörum lang hæstu einkunnina.

Launakjör
Mat á ánægju og stolti er byggt á fjórum spurningum, þ.e. ánægju með starfið, líðan í starfi, hvort viðkomandi sé tilbúin(n) til að mæla með stofnuninni og hvort viðkomandi sé stolt(ur) af stofnuninni. Flestir, um 84%, gefa ánægju og stolti góða einkunn. Félagsmenn Sameykis gefa ánægju og stolti lítið eitt lægri einkunn en þeir sem standa utan Sameykis en munurinn er þó ekki mikill. Þá eru litlar breytingar á milli ára á þessum þætti.

Mest ánægja og stolt er hjá fyrirtækjum borgarinnar en minna hjá öðrum atvinnurekendum. Konur gefa þessum þætti hærri einkunn en karlar en lítill munur er á viðhorfum eftir aldurshópum. Stjórnendur eru á hinn bóginn lang ánægðastir og stoltastir af öllum starfsstéttunum sem eru skoðaðar en það dregur úr ánægju og stolti eftir því sem vinnustaðurinn stækkar.

Ánægja og stolt
Karlar eru að jafnaði ánægðari með laun sín en konur og er svo einnig nú í þessari könnun. Stjórnendur eru mun ánægðari með laun sín en aðrir hópar og starfsfólk minni stofnana er einnig ánægðara en starfsfólk stærri stofnana. Það styður það sem áður var sagt að launasveigjanleiki er almennt meiri í minni stofnunum en stærri. „Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með launakjör?“ Ein spurningin í þættinum er „ánægja með launakjör.“ Ríflega þriðjungur er ánægður með launakjör en ríflega tveir af fimm óánægðir með launakjör sín.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)