Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Vinningshafar - Borg og bær 2023

Helstu niðurstöður

Þetta er annað árið sem Reykjavíkurborg tekur þátt fyrir allt starfsfólk. Alls náðu 232 starfsstöðvar lágmarksviðmiðum og taka því þátt í vali á Stofnun ársins. Listanum er skipt í þrennt, þ.e. litlir, meðalstórir og stórir starfsstaðir. Í flokki stórra starfsstaða eru 39 starfsstaðir, í flokki meðalstóra starfsstaða eru 65 starfsstaðir og í flokki lítilla starfsstaða eru 128 starfsstaðir. Að þessu sinni náðu sveitarfélög önnur en Reykjavíkurborg ekki lágmarksviðmiðum í könnuninni og ná því ekki inn á lista.

Stofnanir ársins eru þrjár: Vesturmiðstöð er sigurvegari í flokki stórra starfsstaða. Hitt húsið er sigurvegari í flokki meðalstórra starfsstaða og Félagsmiðstöðin Sigyn bar sigur úr býtum í flokki minni starfsstaða.

Fyrirmyndarvinnustaðir

Í hverjum stærðarflokki hljóta efstu fimm starfsstaðir sæmdarheitið Fyrirmyndarstofnanir. Í flokki stærstu starfsstaðanna eru fimm fyrirmyndarstofnanir, eins og sjá má í töflum 8, 9 og 10. Í hópi stærstu starfsstaða eru fimm fyrirmyndarstarfsstaðir. Auk sigurvegara flokksins, sem er Vesturmiðstöð, eru til viðbótar valdir fjórir fyrirmyndarstarfsstaðir: Álftamýrarskóli, sem er í öðru sæti en var í fimmta sæti í fyrra, Skrifstofa velferðarsviðs, sem er í þriðja sæti en var í sjötta sæti í fyrra, Dalaskóli er svo í fjórða sæti en hann náði ekki inn á lista í fyrra. Í fimmta sæti er svo Háteigsskóli sem var í 12. sæti fyrir ári síðan.

Fyrirmyndarstofnanir - borg og bær (50 starfsmenn og fleiri)
1. Vesturmiðstöð
2. Álftamýrarskóli
3. Skrifstofa velferðarsviðs
4. Dalskóli
5. Háteigsskóli

Í hópi starfsstaða í millistærð eru einnig fimm fyrirmyndarstarfsstaðir. Auk sigurvegara flokksins sem er Hitt húsið – sem einnig var efst í sínum flokki í fyrra – eru valdir fjórir fyrirmyndarstarfsstaðir, þar af þrír leikskólar: Leikskólinn Álftaborg er í öðru sæti, Leikskólinn Grænaborg í fjórða sæti og Leikskólinn Gullborg í því fimmta. Auk þeirra er Rafræn miðstöð sem raðast í þriðja sæti í ár. Leikskólinn Álftaborg var í 20. sæti fyrir ári síðan, Grænaborg í fjórða sæti en Gullborg náði ekki inn á lista í fyrra. Rafræn miðstöð var í hópi minnstu
starfstaða í fyrra og var þar í níunda sæti.

Fyrirmyndarstofnanir - borg og bær (25 til 49 starfsmenn)
1. Hitt Húsið
2. Leikskólinn Álftaborg
3. Rafræn miðstöð
4. Leikskólinn Grænaborg
5. Leikskólinn Gullborg

Í hópi minnstu starfsstaða eru einnig fimm fyrirmyndarstarfsstaðir. Auk sigurvegara flokksins sem er Félagsmiðstöðin Sigyn, eru valdir fjórir fyrirmyndarstarfsstaðir. Þar af tvær félagsmiðstöðvar til viðbótar: Ársel í þriðja sæti og Tónabær í fjórða sæti. Með þeim á lista eru svo tvö
frístundaheimili, Frostheimar í öðru sæti og Draumaland Austurbæjarskóla í fimmta sæti. Enginn af þessum starfsstöðum var á lista í fyrra.

Fyrirmyndarstofnanir - borg og bær (færri en 25 starfsmenn)
1. Félagsmiðstöðin Sigyn
2. Frístundaheimilið Frostheimar
3. Félagsmiðstöðin Ársel
4. Félagsmiðstöðin Tónabær
5. Frístundaheimilið Draumaland, Austurbæjarskóla

Hvaða vinnustaður stekkur hæst?

Hástökkvari starfsstöðva borgarinnar árið 2023 er Íbúðakjarni Hringbraut B. Við útreikning á hástökkvurum er fyrst reiknuð raðeinkunn fyrir alla starfsstaði á bilinu 1-100 og svo er reiknaður munur á raðeinkunn milli ára. Íbúðakjarni Hringbraut B stekkur hæst allra, eða um 57 sæti. Þá er átt við sæti á raðeinkunninni.

 

Hér má nálgast heildarlista yfir starfsstaði Reykjavíkurborgar.

Sameyki óskar starfsmönnum og stjórnendum þessara starfsstaða innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)