Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

28. maí 2024

Fjölskyldudagur í Heiðmörk

Sameyki stendur fyrir fjölskyldu- og gróðursetningardegi í „Landnemareit“ Sameykis í Heiðmörk laugardaginn 8. júní kl. 11:00. Nýtt skilti verður afhjúpað og félagsfólki býðst að gróðursetja trjáplöntur í reitnum.

Boðið verður upp á léttar veitingar fyrir alla fjölskylduna í fallegu umhverfi.

Leiðarvísir
Gott er að leggja bíl á Borgarstjóraplaninu (sjá kort). Það eru rúmlega 600 metra ganga í lundinn. Leiðin verður vel merkt með flöggum Sameykis alla leiðina frá bílastæði að reitnum.

Skráning er á viðburðinn svo hægt sé að áætla veitingar.

Hlökkum til að sjá ykkur.

 

Skráning á viðburðinn hér

 

  • Fréttamyd