Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Aðalfundur

Aðalfundur er æðsta vald félagsins og opinn öllu félagsfólki í Sameyki. Aðalfundur skal haldinn fyrir lok marsmánaðar ár hvert.
Halda áfram

Aðalfundur

Aðalfundur Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 16:30 á Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 28, í fundarsalnum Háteigi á efstu hæð.

Á fundinum fer fram hefðbundin aðalfundarstörf, þar á meðal skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins, afgreiðsla reikninga og fjárhagsáætlunar, ákvörðun um árgjald og kosningar. Einnig verður fjallað um tillögur að lagabreytingum, sameiningu við Póstmannafélag Íslands og ályktanir aðalfundar.

Félagsfólk er hvatt til að mæta og taka þátt í starfi og mótun félagsins til framtíðar. Nauðsynlegt er að skrá sig.

Skráning hér

Aðalfundur er æðsta vald félagsins. Samkvæmt lögum Sameykis skal  hann haldinn fyrir lok marsmánaðar ár hvert. Fundurinn skal auglýstur á tryggilegan hátt með a.m.k. 35 sólarhringa fyrirvara. Jafnframt skal auglýst eftir tillögum um stjórnarmenn þegar stjórnarkjör fer fram, sbr. ákv. 9. og 10. gr. Takist ekki að ljúka aðalfundarstörfum á einum fundi skal boða til framhaldsaðalfundar.

4. kafli. Aðalfundur
12. gr. - Aðalfundur er æðsta vald félagsins. Aðalfundur skal auglýstur á tryggilegan hátt með a.m.k. 35 sólarhringa fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað.

13. gr. - Aðalfund skal halda fyrir lok marsmánaðar ár hvert. Takist ekki að ljúka aðalfundarstörfum á einum fundi skal boða til framhaldsaðalfundar.

Dagskrá aðalfundar:

1. Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemi félagsins á síðastliðnu ári.
2.Lagðir fram til staðfestingar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið almanaksár og fjárhagsáætlun ársins kynnt.
3. Tekin ákvörðun um tillögur til lagabreytinga og breytinga á reglum sjóða.
4. Úrslit allsherjaratkvæðagreiðslu í stjórnarkjöri kynnt.
5. Kosinn löggiltur endurskoðandi félagsreikninga, tveir skoðunarmenn og tveir til vara.
6. Kosnir fimm einstaklingar í kjörstjórn og jafnmargir til vara.
7. Ákveðið árgjald félagsfólks og skipting þess milli sjóða.
8. Kosið í stjórn orlofssjóðs, vinnudeilusjóðs, starfsmenntunarsjóðs og styrktar- og sjúkrasjóðs skv. reglum þeirra.
9. Ályktanir aðalfundar afgreiddar.
10. Önnur mál.

Ofantalin eru sérstök verkefni aðalfunda, nema á því ári sem ekki fer fram stjórnarkjör, þá falla af dagskrá fundarins töluliðir 4, 6 og 8.

Ársskýrslur Sameykis

Fundargerðir aðalfunda